SIV Lausafjársjóður hs.
Nýr sjóður
Gengi og ávöxtun birtast hér þegar þau liggja fyrir.
Sjóðurinn er lausafjársjóður og fjárfestir aðallega í innlánum hjá fjármálafyrirtækjum. Sjóðurinn hefur einnig heimild til að fjárfesta í víxlum og stuttum skuldabréfum útgefnum af ríki, sveitarfélögum eða fjármálafyrirtækjum.
Markmið sjóðsins er að skila jafnri ávöxtun á skammtímavaxtamarkaði með fjárfestingu í dreifðu safni innlána, víxla og skuldabréfa. Sjóðurinn hentar fjárfestum sem vilja ávaxta fé til skamms tíma eða til lengri tíma. Hámarks meðallíftími eignasafnsins er 180 dagar. Ráðlagður fjárfestingartími er einn mánuður eða lengur.
Frekari upplýsingar má nálgast í lykilupplýsingum og í útboðslýsingu sjóðsins.
Þann 1. desember 2023 var sjóðsfélögum tilkynnt að SIV eignastýring myndi taka yfir rekstur sjóðsins þann 5. desember 2023. Tilkynninguna má sjá undir "Skjöl".
Yfirlit
| Eignaflokkur | Lausafjársjóður |
| Rekstrarform | Sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta |
| Rekstraraðili | Íslensk verðbréf hf. |
| Uppgjörstími kaupa/sölu | Einn virkur dagur (T+1) |
| Vörslufyrirtæki | T Plús hf. |
| Áhættuflokkun | 1/7 |
| ISIN | IS0000035418 |
| Stofnár | 2023 |
| Gjaldmiðill | ISK |
| Umsýsluþóknun | 0,40% |
| Gengismunur | Enginn |
| Viðskiptatími | 09:30 - 14:30 |
| Lágmarkskaup | 10.000 kr. |
Sjóðstjórn
Almennar fyrirspurnir um sjóði skulu berast til Íslenskra verðbréfa á netfangið sjodir@iv.is.
Eignasamsetning
2025-06-30- Skuldabréf og peningamarkaðsgerningar ríkissjóðs51,70%
- Innlán fjármálafyrirtækja32,80%
- Sértryggð skuldabréf15,60%
- Skuldabréf og peningamarkaðsgerningar fjármálafyrirtækja0,00%
Fjárfestingarheimildir
| Eignaflokkur | Lágmark | Hámark |
| Innlán fjármálafyrirtækja | 30% | 100% |
| Skuldabréf og peningamarkaðsgerningar útgefnir af íslenska ríkinu eða með ábyrgð þess, eða útgefnir af fjármálafyrirtækjum skv. lögum nr. 11/2008 um sértryggð skuldabréf | 0% | 70% |
| Skuldabréf og peningamarkaðsgerningar fjármálafyrirtækja | 0% | 50% |
| Skuldarbréf og peningamarkaðsgerningar sveitarfélaga | 0% | 30% |
| Afleiður | 0% | 30% |
Mánaðarlega birtum við ný upplýsingaskjöl fyrir hvern sjóð.
Almennar fyrirspurnir um sjóði skulu berast til SIV eignastýringar á netfangið sjodir@iv.is.
Hægt er að kaupa í sjóðum Íslenskra verðbréfa með því að fara í gegnum stutt kaupferli í gegnum verðbréfavef félagsins.
Aðilar sem eru með vörslusafn annars staðar en hjá Íslenskum verðbréfum geta beint fyrirmælum um kaup eða sölu til síns viðskiptabanka. Athugið að afgreiðslugjald fer eftir verðskrá viðkomandi banka.
Almennar fyrirspurnir um sjóði skulu berast til Íslenskra verðbréfa á netfangið sjodir@iv.is.
Fossar fjárfestingarbanki
Eignastýring sjodir@fossar.is
Acro verðbréf
Markaðir markadir@acro.is
Arion banki
Verðbréfaráðgjöf Sími: 444 7000 verdbref@arionbanki.is
Íslandsbanki
Verðbréfaráðgjöf Sími: 440 4000 verdbref@islandsbanki.is
Landsbankinn
Hafið samband við Íslensk verðbréf sjodir@iv.is
Kvika banki
Verðbréfaþjónusta sjodir@kvika.is
Lagalegir fyrirvarar
Upplýsingar á heimasíðu þessari eru veittar í upplýsingaskyni eingöngu en skulu ekki nýttar á þeirri forsendu að um sé að ræða ráðleggingar vegna fjárfestinga í fjármálagerningum eða öðru.


