Vegna tæknilegra örðugleika birtist staða innlána ekki í eignasafni á iv.is hjá viðskiptavinum sem áður voru hjá SPRON.
Innlánin hafa þó flust til Íslenskra verðbréfa líkt og aðrar eignir sjóða, eignastýringar og vörslu. Viðskiptavinum er bent á að hafa samband í síma 460 4700 til að fá nánari upplýsingar, einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið iv@iv.is með fyrirspurn sama efnis.
Unnið er að lausn og munu fréttir þess efnis birtast á heimasíðunni eins fljótt og kostur er.
Um leið er rétt að taka fram að enn vantar stöður nokkurra eignaflokka í yfirlitum fyrrum viðskiptavina SPRON en vonast er til að það lagist síðar í dag.